23.6.05

Jæja, nú er aðeins vika í tónleika. Ég var að fá tölvupóst frá Jenn, sem vinnur fyrir duranduranmusic.com, með upplýsingum um VIP partýið... Ég verð mætt í Egilshöllina bara um hálf fimm leytið þann 30. júní! Vúhú!!!

Svo heldur hún, þessi elska, að það sé búið að selja 14 VIP miða... ég veit um mig og minn eiginmann + 8 breta... það skyldi þó ekki vera að einhverjir íslendingar séu jafn klikkaðir og ég að eyða fullt af pening í þessa frábæru hljómsveit??!!??!!

Enívej.. ég hlakka mikið til. Er alveg komin í gírinn og langar bara helst að þetta verði á morgun... eða í kvöld! En þar sem "strákarnir mínir" eru að spila í Grikklandi í kvöld og verða svo í Noregi og Svíþjóð á mánudag og þriðjudag, verð ég víst að vera svolítið þolinmóð. Hef náttúrulega beðið í 21 ár eftir því að þeir spili hér á landinu *mínu*.. hlýt að geta beðið í viku í viðbót :-Þ

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim