3.6.05

Ég mæli eindregið með fataútsölum :) Fór í gærkvöld í Friendtex í Síðumúlanum og gerði rosalega góð kaup. Tók litlu systur með og það lá við að hún fengi hjartaáfall yfir æsingi því hún gat keypt sér töff föt á lágu verði :) Mikið fjör hjá okkur stelpunum.. mátuðum svona um það bil einn fjórða af búðinni, held ég.

Ég er farin að hlakka til sunnudagsins þar sem ég ætla á útgáfutónleika Hildar Völu með eldri dóttur minni. Vonandi tekst henni að halda tónleikana í þetta skiptið ;)

Annars er ekkert svakalega mikið á dagskránni fyrir helgina. Rólegheit og stelputími með litlu dömunni minni þar sem maðurinn minn verður víst vinnandi alla helgina.

27 dagar í Djúran. Ég er að vinna í bolnum....

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim