7.11.05

Mig langar að kynna ykkur fyrir leik sem ég hef spilað nokkuð lengi. Þetta er svona verðbréfa leikur nema hvað að verðbréfin eru í fræga fólkinu og verðið hækkar og lækkar eftir því hvort fólkið er mikið í fjölmiðlunum eða ekki. Svo verður maður að tékka á fjárfestingunum sínum nokkrum sinnum á dag því maður gæti misst af einhverju miklu og celebbinn manns bara hrunið í verði á nokkrum klukkutímum. Svo eru stundum milljóneradagar, ef þú ert yfir milljón í "eign" á þeim degi færðu merki um eignina og ferð niður í 10.000 pund til að fjárfesta með.

Ef ég gæti skipt út þessum "cyber-peningum" fyrir alvöru þá gæti ég og öll mín fjölskylda lifað í lúxus restina af lífinu. Ég er nefnilega orðinn 22-faldur milljónamæringur (í pundum þar að auki).

Og hvað heitir svo leikurinn?

Nú auðvitað Celebdaq!

1 Ummæli:

Þann 08 nóvember, 2005 11:55 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

var einu sinni í þessu en hef ekki opnað þessa síðu í 4-5 ár. Skildi ég vera gjaldþrota eða milli.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim