Eitt próf búið, eitt eftir. Jarðfræðin var ágæt í gær. Ég er nokkuð örugg með ca. 80% af prófinu, svo kemur það bara í ljós hvort ég hef rétt fyrir mér.
Merkilegt hvað Íslendingar eru að missa sig í Ameríkunni þessa dagana, sbr. frétt á mbl.is. Það er bara eins og liðið hafi aldrei vitað af búðum áður! Allt að 40 töskur skildar eftir í hverri ferð... og vélin tekur 189 manns!! Ég bara á ekki orð....
Mikið verður gott að hvíla sig aðeins eftir þetta prófastress hérna. Ég er alveg úrvinda á kvöldin og vil helst bara fá að sofa 10-12 tíma á hverri nóttu. Sem betur fer er ég allavega búin að kaupa langflestar jólagjafirnar. Á bara eftir að hjálpa stelpunum að kaupa eitthvað handa pabbanum á heimilinu og ég á eftir að kaupa gjöf handa systkininu mínu sem varð fyrir valinu þetta árið (við drögum nöfn á miðum þannig að hvert okkar gefur einu systkini gjöf, ágætis lausn þegar við erum svona mörg). Jú, og ég á eftir að kaupa eitthvað handa jólavini mínum í saumaklúbbnum! Fékk bara að vita í gær hver það er og hlakka til að finna eitthvað fallegt til að senda í þeim jólapakka. Svo get ég farið að dunda við að gera jólakortin og er víst líka búin að lofa dætrunum að baka einhverjar jólakökur. Ég held ég leggi samt ekki í sörur í þetta skiptið. Get bara engan veginn eytt orkunni í það púsluspil.
*geisp* Ég hefði alveg getað hugsað mér að sofa lengur í morgun.... Mikið verður gott þegar daginn fer að lengja aftur.. ég þoli ekki allt þetta endalausa myrkur.
5 Ummæli:
Ég ætla sko að baka sörur, sama hversu mikið vesen það er. Mér finnst ekki vera jól nema ég eigi sörur í frystinum.
Og ekki hætti ég á það að komast í ekkert jólaskap... er svo innilega ekki jólabarn :-/
En gott að jarðfræðin gekk vel!
Ég get ábyggilega rænt mér nokkrum sörum frá tengdamömmu, hún bakar nokkur þúsund stykki og selur fyrir hver jól... ;-)
ok sörur eru góðar beint úr frysti en ég bara nenni ekki að gera þær hehe.
Nokkur þúsund stykki..... hólí mólí sko!
Hehehe já hún tengdamóðir mín er léttgeggjuð :) og ekki er hún að selja þetta fyrir sjálfa sig heldur kórinn sinn!!!!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim