11.11.05

Svo virðist vera sem einn maður sé búinn að ákveða að á túninu hinum megin við götuna mína skuli vera reist óperuhús. Mér þykir þetta alveg stórmerkilegt hvað þessi eini maður telur sig vera Guð almáttugan okkar Kópavogsbúa og geti bara ákveðið allt sjálfur og þurfi sko engan umræðu um eitt né neitt sem hann tekur ákvörðun um.

Bendi á þessa frétt á vef Kópavogsbæjar sem sýnir alveg svart á hvítu um hvað er verið að ræða.

Þrátt fyrir að hann segi engar skuldbindingar hafi verið gerðar, heyrir maður fréttir af þessu máli í fjölmiðlum við og við. Í fréttablaðinu í dag er mynd af þessum manni á þeim stað sem hann ætlar að reisa óperuhúsið. Þetta virðist vera alveg harðákveðið mál, tjah nema það að hann vill ekki að bæjarstjórn komi nokkuð nálægt því og telur það ekki "tímabært" að greina frá öðrum aðilum sem að málinu koma. Í fréttum Bylgjunnar nú í hádeginu heyrði ég samt "telur hann að húsið verði tilbúið árið 2008".. eða var það 2007? Ég man það ekki, ég var svo klumsa við að heyra þetta.

Ég hlakka innilega til að sjá hvert framhaldið verður, hvort karlanginn geti séð sér fært að bera þetta mál undir bæjarstjórn til samþykktar allavega, svona áður en verður farið að grafa fyrir grunninum.

Hvað finnst ykkur? Er ég bara svona menguð af anti-sjálfstæðis-isma eða eru þetta ekki svolítið óeðlileg vinnubrögð??

4 Ummæli:

Þann 11 nóvember, 2005 15:39 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

Já þessi maður "ÞAÐ ER GOTT AÐ BÚA Í KÓPAVOGI" er undarlegur fír heldur að hann sé einhver D.O.

 
Þann 11 nóvember, 2005 16:52 , Blogger eva sagði...

Sumir 'Davíðar' og 'Gunnarar' eru bara meiri 'Einráðar' en aðrir...!

 
Þann 11 nóvember, 2005 17:10 , Blogger Asdis sagði...

Nákvæmlega! Davíðar og Gunnarar.. hehehe

Hafrún, þýðir D.O. Djöfuls Ormur eða hvað??

 
Þann 14 nóvember, 2005 15:40 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

hehehe já Ásdís djöfulsins ormur hehehe það hentar honum fínt er ekki DO fan

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim