Veikinda-uppdeit:
Líður ennþá eins og kúk, en fór til læknis og lét hann taka strok úr hálsinum á mér. Hann sagði kokið á mér vera eldrautt en allavega ekki farið að grafa í hálskirtlunum (sem þýðir að þetta er vírus... það fer yfirleitt ekki að grafa í kirtlunum nema það sé bakteríusýking) og svo var náttúrulega strep testið neikvætt. Þannig að ég á bara að liggja uppi í rúmi alla helgina og reyna að láta mér batna. Finnst ömurlegt að hafa misst af jólakaffinu á leikskólanum í dag og svo verður jólaball leikskólans á laugardaginn og eldri dóttir mín ætlar að spila nokkur jólalög fyrir Breiðfirðinga á sunnudaginn :-( Þetta sökkar feitt og mig langar bara til að grenja. Ég fékk vottorð fyrir prófið á morgun og skrái mig þá í veikindapróf eftir viku.
Ég vorkenni mér ofsalega mikið...
3 Ummæli:
Æji ekki gott að missa af svona hlutum vonandi kemstu þó ekki væri nema smá og svo beint aftur upp í rúm.
:-( Láttu þér batna.
Já mér finnst alveg ömurlegt að þú skulir vera svona veik :( og kemst þar af leiðandi ekki í partýið okkar Ágústu... en við höldum annað partý á nýju ári ;) það er ábyggilegt.
Knúsí, Björg
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim