Þá er HÁSBÁS búin þetta árið. Það er næstum því bara sorglegt að við skyldum hafa klárað skammtinn svo snemma. Það liggur við að maður stingi upp á annarri ferð í október svona til að jafna þetta aðeins út ;-) Við skemmtum okkur ógurlega vel, sungum eins og idjótar í Singstar Party og 80s og vorum við það að verða hásar á tímabili. Eyddum ótrúlegum tíma í heita pottinum. Eyddum yndislegum tíma í mat, nammi og guðaveigar. Spiluðum Catan sæfara, Trivial Pursuit, Manna og Suður-Amerískt (frekar en Afrískt!!) rommí sem er mjög skemmtilegt spil. BH, nennirðu að senda mér listann í tölvupósti við tækifæri??
Við horfðum líka á júróvisjón á laugardaginn. Æjæj.. mér var næstum því illt á tímabili. Ég get engan veginn skilið þetta Silvíu-Nóttar-dæmi. Ég veit það alveg að hún er að leika og allt það (fólk er voða sensitívt gagnvart því og heldur að ég haldi að þetta sé alvara) en ég bara fíla þennan "húmor" engan veginn. Þetta er svo innilega ófyndið allt saman að ég er bara farin að halda að ég hljóti að vera gjörsamlega húmorslaus... en verð nú að vera nokkuð viss samt um að svo sé ekki, þar sem ég er yfirleitt algjör bjáni sem tekur varla neinu alvarlega. Allavega, það voru nokkrir þarna í keppninni sem stóðu sig mjög vel og með ágætis lög sem hefðu alveg getað virkað vel í keppninni í Aþenu. En það þýðir víst lítið að gráta úrslitin. Ég ræð ekki neinu hvort eð er. Ég á bara í erfiðleikum með að ætla mér að setjast niður og horfa á keppnina í maí þar sem ég á engan veginn eftir að geta fyllst þessu þjóðarstolti sem alltaf hefur komið yfir mig þegar okkar fólk tekur þátt.
En.. hápunktur helgarinnar: B & S að syngja The Power of Love með Frankie Goes to Hollywood. Eitt af mínum uppáhaldslögum með tveimur af mínum uppáhalds-stelpum! Ekki slæmt að fá að vera vitni að slíku.
Eitt var verra en júróvisjón. Ég og B að reyna að rappa eitthvað Run DMC lag sem við þekktum ekki einu sinni. Bwahahahaha... Við sökkum feitt sem rapparar!
5 Ummæli:
Svona er þetta bara með hana Silvíu, sumir HATA hana og sumir ELSKA hana :o)
Lofa að þú ert ekkert verri manneskja fyrir vikið <3
En ég HATA hana ekki. Hef bara ekki neinar sterkar tilfinningar til hennar. Finnst hún bara ekki fyndin.... Það eina sem mér finnst kúl við hana er að hún getur sungið með tyggjó ;-) Það eru ekki margir sem geta gert það!
hmmm eru fleiri brúðkaup í familíunni en ég og Heiða Dröfn??? Spennó ;p Við Björn erum 06.maí en Heiða og Stebbi 8.júlí. HeHe fyndið að lesa lýsingarnar af Singstar ævintýrinu, sérstaklega vegna þess að ég var sjálf í svona hitting um daginn og það var bara fjör sko :D ég og maður vinkonu minnar enduðum bæði vel tipsí (hún og Björn svo til edrú) ... töpuðum okkur alveg í nokkrum lögum. Gaman að sleppa fram af sér söngbeislinu af og til :) burtséð frá sönghæfileikum ehemm
Lilja og Svanur ætla að binda hnútinn 1. júlí þannig að þetta sleppur allt þá ;-)
IT'S TRICKY TO ROCK A RHYME, TO ROCK A RHYME, THAT'S RIGHT ON TIME IT'S TRICKY! ;þ
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim