10.2.06

Ég fékk smá tíma fyrir sjálfa mig eftir vinnu í dag og fór í kjólaleit. Þræddi bæði Smáralind og Kringluna og komst að því að ég fíla greinilega ekki tískuna í dag.

Allir kjólar sem ég sá voru í einum af þessum þremur "stílum":

1) Fáránlegt risastórt mynstur, sumstaðar þannig að maður heldur að flíkin sé saumuð úr þykkum stofugluggatjöldum frá árinu 1976.

2) Brúðkaupskjólar, svaka sjæní og fínir en ekki alveg ég.

3) Dót sem lítur út fyrir að hafa verið keypt af sígaunakerlingu sem hefur sjálf notað kjólana í allavega 30 ár.

Einhvern veginn held ég að ég endi bara í einhverjum af mínum gömlu görmum annað kvöld. Tjah nema mér takist að þræða Laugaveginn á morgun og að þar sé einhver önnur tíska í gangi!

Over and out.

3 Ummæli:

Þann 12 febrúar, 2006 18:05 , Blogger Árni Theodór sagði...

Úr því að ég er eiginlega hættur að blogga ætla ég að svara klukkinu í commentaformi.

Fjögur störf sem ég hef unnið við:
Standsetjari í B&L
Blikksmiðjan Aðalblikk
Kolaportið
Fálkaborg(leikskóli)

Fjórar myndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
Being There
Eraserhead
A clockwork Orange
Full metal jacket

Fjórir staðir sem ég hef búið á
Sigtún 21 (Patreksfjörður)
Sigtún 51 (Patreksfjörður)
Flúðasel 94 Rvk
Eyjabakki 6 rvk

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla að horfa á
24
Family Guy
American dad
The Simpsons

Fjórir staðir sem ég hef ferðast til (í fríi):
Látrarbjarg
Mývatn
Jökulsárlón
Þingvellir

Fjórar vefsíður sem ég fer inn á daglega:
Hotmail
google
?
?

Fjórar uppáhaldsmatartegundir
Pasta með pestó, tómötum og fetaosti.
Lasanja
Allskyns pizzur
Allt frá Asíu

Fjórir CD sem ég gæti ekki verið án
The Smiths - Meat is murder
Belle & Sebastian - If you're feeling sinister
The Pixies - Come on pilgrim
Sonic Youth - Dirty

Fjórir staðir sem ég mundi frekar vilja vera á
Enginn annar staður til sem mig langar frekar til að vera á.

 
Þann 14 febrúar, 2006 19:59 , Blogger eva sagði...

Ditto!
Er einmitt að fara á árshátíð bráðlega og er búin að gefast upp á að leita. Búin að velja mér föt í skápnum til að vera í :)

 
Þann 16 febrúar, 2006 08:21 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

Ég fer í brúðarkjólinn minn á árshátíðina hér hefur enginn séð hann og hann er ekki þessi hvíti týpíski brúðarkjóll heldur kremlitaður ermalaus fallegur kjóll og fer mér vel.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim