29.5.06

Ó mæ god. Ég er aldeilis dottin í það hressilega á youtube. Ekkert smá gaman að hafa öll þessi tónlistarvídeó þarna. Ég er nefnilega hið upprunalega tónlistarvídeóasöfnunarfrík ef þið vissuð ekki af því nú þegar.

Ég verð að deila þessu frábæra vídeói með ykkur. Þetta er mómentið sem ég uppgötvaði Jamiroquai á MTV. Þetta vídeó var svo útúrklikkað miðað við annað sem var í gangi á þessum tíma (1994, minnir mig), þessi gaur dansaði svo hryllilega hallærislega að það var bara eiginlega kúl, hann hafði þennan smá Stevie Wonder tón í röddinni sinni svona hér og þar og var bara grúví.

Njótið vel.

3 Ummæli:

Þann 30 maí, 2006 11:27 , Blogger Árni Theodór sagði...

Frábært myndband.

Ég er líka búinn að vera með youtube brjálæði undanfarið. Mig langar að sýna þér eitt gott vídjó

Do what's good for me

2 unlimited klikkar ekki, enda uppáhalds hljómsveitin mín þegar ég var 10 ára. Ég kunni alla dansana og svona. Þau komu frá Belgíu og gæjinn með toppinn dó í bílslysi 98 held ég. Konan hélt þó ótrauð áfram og stofnaði sólóprojekti. Ég þori samt ekki að hengja mig upp á það en............ Brjálað vídjó

 
Þann 30 maí, 2006 11:34 , Blogger Árni Theodór sagði...

Ég varð að ná í textan þegar gæjinn er að rappa. Hahahaha, ég er í algjörum nostalgíutrans núna.

Listen up, push it down
This is the booming system sound
Floating around into your town
Open your eyes
See what I've found
Yes I keep it real
Do what I feel
Stop telling me, I know the deal
Female or male, inhale, exhale
No criminal no me never see jail
No more if's
I say no more maybe's
We'll be alright, I tell you baby
Let the leader lead, let the player play
Can you tell the world what we wanna say?

Yes I made it
I can't be faded
My X-ray eyes are activated
I buzz a rhyme, yo
And I clime, clime, clime
I'm going for gold, yes
I'm going for mine
I'm taking my life in own hands, you see
And doing exactly what's right for me
Nowadays thel all wanna see me
But listen close, they never can beat me

 
Þann 30 maí, 2006 12:11 , Blogger Asdis sagði...

Bwahahahahahahaha... 2 Unlimited er algjör snilld! Mig rámar í skemmtileg "djömm" hérna í gamla daga, s.s. þegar þú varst 10 ára (hahahaha sýnir bara hvað ég er gömul) þar sem setningunni techno techno techno techno var bætt inn í hin ýmsu lög sem við vorum að gaula á djamminu. Kom sérstaklega vel út þegar Sigurgeir vinur minn söng "Smoke on the water, fire in the sky, techno techno techno techno" í karaoke á Tveimur vinum og öðrum í fríi. Já, those were the days.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim