28.7.04

Hvað á það að þýða að fá kvef og hálsbólgu svona um mitt sumar?  Ég er bara ekki sátt við þetta.  Ég lá eins og barið buff í mest allan gærdag, hóstandi og hnerrandi á víxl, ekki gaman.  Maður verður bara að dæla í sig vítamínunum og athuga hvort þau virka.

Já, ég fór á djammið sl. laugardag með Björgu, Halldóri og vinafólki þeirra.  Jösses, ég hef bara ekki dansað svona mikið í fleiri ár, held ég.  Við fórum sem sagt á Nasa þar sem Straumar og Stefán voru að spila og það var svaka fjör.  Ég skreið heim um hálf 4 leytið, alveg búin í fótunum eftir öll danssporin og með ýlfur í eyrunum (ó það er svo gaman að vera með eyrnasuð).

Nú er rauðhærða skvísan mín farin til pabba síns í sumarfrí.  Ég sakna hennar strax, að sjálfsögðu, en hún hefur verið dugleg að hringja í okkur á hverjum degi, sérstaklega reyndar til að fá að heyra í litlu systur sinni.  Ég held þær sakni hvor annarrar álíka mikið og þær voru farnar að fara í taugarnar hvor á annarri síðustu vikuna sem þær áttu í fríi saman.

Verslunarmannahelgin framundan og það lítur nú ekki út fyrir að við leggjum í einhverja langferð þá helgina.  Vonast bara eftir góðu veðri á höfuðborgarsvæðinu svo við getum notið sólar á palli og í potti :)  Fólk er velkomið í heimsókn!

1 Ummæli:

Þann 28 júlí, 2004 12:35 , Blogger Heiða María sagði...

Var aðeins hjá þeim í gær. Henni leiðist eitthvað greyinu. Hefur áhyggjur af því að finna sér enga vini á nýja staðnum. Það á samt alveg örugglega eftir að lagast ;-)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim