Margt hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Ég var veik í 1 1/2 dag, heklaði poncho á meðan og horfði á Amelie í fyrsta sinn, mjög skemmtileg og lithrein mynd :) Svo fór ég að sjá Van Morrison í Laugardalshöllinni, sem var mjög gaman. Skemmtileg létt-djözzuð tónlist en svolítið svekkelsi yfir að hann skyldi ekki taka Brown eyed girl fyrir okkur bláeygðu stúlkurnar.
Þrítugsafmæli í smástund og svo skellti ég mér á Kaffibarinn í fyrsta sinn á ævinni með litlu systrunum mínum. Já. Kaffibarinn er sérstakur staður. Svona veiðistaður aðallega held ég. Hahahaha ég skemmti mér mjög vel við að fylgjast með fólkinu á dansgólfinu og hitti m.a. einn mann sem var fullur slagsmálahundur fyrir 18 árum síðan og mér sýndist hann ekkert hafa breyst síðan þá. Við dönsuðum við Djúlíu í nokkurn tíma, greyið stelpan fékk samt engan frið fyrir fullum drengjum. Þarna var mikið af leiklistar"pakki", fullt af fólki úr Hárinu og þ.á.m. kynþokkafyllsti maður Íslands, hann Þorvaldur Davíð. Ég var afskaplega glöð þegar Rakel, vinkona Kristínar, bauðst til að skutla mér heim um 5 leytið ;)
Í morgun fór litla daman mín loksins í aðgerð, stór fæðingarblettur fjarlægður af sköflungnum. Hún var svæfð í ca. hálftíma og fékk stóóóóóran skammt af paracetamol þannig að hún sefur eiginlega bara enn, 5 tímum síðar. Litla angastelpan mín....
Mér gengur ágætlega í skólanum, finnst það bara enn svolítið fyndið hvað maður á að hafa mikinn orðaforða í spænsku þegar maður byrjar í 103 ;)
Svo förum við hjónakornin í brúðkaup á laugardaginn. Það verður eflaust fjör! Vííííí

2 Ummæli:
Amélie er æðisleg, ein af mínum uppáhaldsmyndum. Mér finnst garðálfurinn þó bestur...
Bara svo þið haldið ekki að ég sé stungin af og láti aldrei í mér heyra aftur, þá virðist user accountinn minn á blogger.com vera týndur. Ég hef ekki getað loggað mig inn í nokkra daga og get þess vegna ekki bloggað. Hálparstofnun Blogger.com er að vinna í málinu og vonandi finnst lausn um helgina.
Kveðja, Ásdís
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim