11.9.04

Alltaf líður langt á milli blogga hjá manni, þetta er ómögulegt! Sit hérna við tölvuna á náttsloppnum þessa torfærugrasekkjuhelgina. Ætla víst að heimsækja ömmu á eftir, eins gott að fara að klæða sig bráðum.
Píanósnillingurinn minn er ofsalega ánægð með píanónámið það sem komið er allavega ;) Hún spilar vel og er dugleg að æfa sig. Kennarinn er mjög ánægður með hana þannig að þetta er allavega mjög góð byrjun.
Vikan hjá mér í vinnunni er búin að vera nokkuð strembin. Ofsalega mikið að gera og svo voru tveir fundir utan vinnutíma þannig að ég átti 2 10 tíma vinnudaga sem er náttúrulega bara alltof mikið fyrir þreytta húsmóður. En ég er nú að komast inn í hluta af starfinu allavega. Búin að læra á félagssjóðinn og er að læra á orlofssjóðinn. Svo er allt hitt eftir ;)
Skólinn byrjar hjá mér á mánudaginn þannig að maður á eftir að hafa nóg að gera hérna heima við líka á kvöldin við að læra. Félagsfræði og spænska, here I come!
Enn eina ferðina reyndi litla snúllan mín að borða súkkulaðibitakex í morgun. Hún er alveg ótrúlegt með þetta. Vill ekkert sem er sætt, en vill samt fá að prófa við og við svona til að athuga hvort eitthvað hafi breyst síðan síðast. Þannig að nú á ég eitt Cadbury's súkkulaðibitakex með músanartfari.. eða lítur út fyrir að vera það. Ég svindla kannski með því í kvöld :) Ég er annars búin að vera rosalega dugleg í að borða fremur kolvetnasnauðan mat og hef misst 5 kíló síðan um mitt sumar eða svo. Mest megnið af handföngunum farið af mittinu mínu og mín ekkert smá ánægð með það!!! Ég er allavega komin með smá mitti aftur, það er fyrir öllu. Ég saknaði þess mikið.
Best að muna nú eftir að taka upp formúluna fyrir karlangann minn á eftir og á morgun. Það verður gaman að sjá hvort Kimi stendur sig vel aftur þessa helgina. Hef svo sem annars ekki miklar áhyggjur af því hvort *hann* standi sig vel, heldur kannski helst að maður hafi áhyggjur af Benz druslunni sem hann keyrir. Leggjumst nú á bæn og biðjum fyrir Benz!!!

2 Ummæli:

Þann 11 september, 2004 18:15 , Blogger Lilja sagði...

Gasalega ertu dugleg að vera búin að missa heil 5 kg :D Ég er að reyna að koma mér í gírinn aftur eftir sukksumarfríið, hehe.

Annars kemur nú píanósnillingurinn mér ekki á óvart ;)

 
Þann 11 september, 2004 18:21 , Blogger Asdis sagði...

Þeink jú þeink jú. Ég er mjög ánægð með kílóin 5, hafði svo sem ekki sett mér neitt stórt markmið enda hef ég svo sem ekkert rosalega mikið til að losa mig við. Vildi prófa til að gá hvernig líkaminn brygðist við og það tókst svona hressilega vel. Og ég er komin niður í 60 kílóin aftur sem er "mín" vigt.. líður rosalega vel í henni.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim