25.8.08

Mig langar að byrja á því að óska handboltalandsliði Íslands *innilega* til hamingju með frábæran árangur á Ólympíuleikunum. Það var hreint ótrúleg tilfinning að fylgjast með leiknum gegn Spáni á föstudaginn og svo náttúrulega þegar þeir stigu á pall í gær. Aftur innilega til hamingju með þennan frábæra árangur :-)

Innilega til hamingju ég líka ;-) Því mér tókst að ná þýskuprófinu á föstudagsmorguninn. Bjóst ekki við miklu þar sem mér fannst mér ganga hryllilega illa. En svo fékk ég heila 6 fyrir blessað prófið. Sem mér finnst með ólíkindum þar sem ég skildi heilan helling eftir. Heilinn fraus bara á ýmsum atriðum og mér tókst ekkert að grafa þau upp úr gráu sellunum. Ég hef alveg grun um að kennarinn hafi verið mjög örlátur!

Fékk líka 8 á enskuprófinu sem ég er mjög ánægð með :-) Get nú haldið áfram með það plan að verða stúdent næsta vor! Ég spjallaði heillengi við fjarnámsstjórann í Verzló á föstudaginn og það var gott samtal. Hún ráðlagði mér mikið varðandi hvaða áfanga ég ætti ekki að taka á sömu önn í vetur, svona þegar maður horfir á efnismagn og erfiðleikastig áfanganna. En... þetta er staðreynd, þó svo að mér finnist hún enn frekar fjarlæg. Ég á bara 17 einingar eftir í stúdentspróf. Og hef efni á einu falli þar sem ég á inni auka félagsfræðiáfanga sem er ekki á einingaplaninu mínu! Ætla samt ekkert að vanda mig við að falla í einu né neinu. En það er gott að vita þetta upp á eðlis- og efnafræðiáfangann sem ég á pottþétt eftir að ströggla með. Þessi fræði koma bara ekki náttúrulega til mín, þó þetta séu náttúrufræði (búahahaa svaðalega er ég fyndin í dag).

Áhugaverður dagur í dag líka. Eftir vinnu fæ ég heimsókn frá bandarískum sálfræðingi sem er að vinna að bók um samkennd gagnvart mismunandi fjölskyldumynstrum. Mér skilst að í Bandaríkjunum sé ekkert mjög algengt að fólk yfirleitt talist við eftir skilnað, alveg sama hvort börn eru í spilinu eða ekki. Og þessi fröken heyrði af mínu fjölskyldumynstri og samskiptunum milli fjölskyldnanna og langar að fræðast meira um það. Það verður gaman að vita hvað kemur út úr þessum rannsóknum hjá henni.

Mér finnst að handboltalandsliðið eigi að æfa "Til hamingju ísland með að ég fæddist hér..." fyrir móttökuna sem verður á miðvikudaginn :-D

3 Comments:

At 26 ágúst, 2008 01:34 , Blogger Hlynur og Erna Sif said...

Já til hamingju Ísland!
og til hamingju Ásdís mit deine prufung in deutch!
Við horfðum á tvo síðustu leikina með landsliðinu og vorum mjög stolt.
Fyndið að heyra lýsinguna á leiknum hérna, þeir voru mikið að reyna að útskýra út á hvað leikurinn gengi sem var frekar fyndið.

Stendur þig rosavel í stúdentsmarkmiðunum, you go girl!

Kveðja
Hlynur og Erna

 
At 26 ágúst, 2008 13:56 , Anonymous Lills said...

Glæsilegur árangur bæði hjá þér sem og h.b.l.liðinu okkar ;)

 
At 04 september, 2008 16:14 , Blogger jeg said...

Frábært hjá þér kona. Úfff hvað þú ert dugleg. Ekki fyrir minn haus að standa í svona námi nei takk.
Knús og klemm úr sveitinni.

 

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim