25.8.04

Jæja, þá er 3ja ára afmælið yfirstaðið og loksins er litla daman komin með aldur til að fara í boltaland í Ikea ;) Það var mesti spenningurinn, held ég. Svo fékk hún tuskuhunda og Sollu stirðu regngalla og bleik stígvél í afmælisgjöf og var svona rosalega ánægð með þetta allt. Ekki var verra að heyra hljóðið í Hlyn frænda og Ernu frá Ástralíu á afmælisdaginn!
Ég sá Juliu Stiles í morgun, ligga ligga lái. Hún var í rútu hérna á bílastæðinu hjá okkur í vinnunni. Voða gaman. Fór reyndar út til að gá hvort ég sæi Forest Whitaker en rak augun ekki í hann enda fullt af fólki þarna allt í kring í kvikmynduninni.
Ég skráði mig í tvær greinar í fjarnámi í FÁ, ætla að athuga hvort ég get lært félagsfræði og spænsku. Það verður ágætt ef maður nær að taka tvær greinar á önn og mjaka sér nær stúdentsprófinu þannig á næstu árum. Ekki er leiðinlegra þegar stéttarfélagið borgar niður 80% af námsgjaldinu.
Það styttist í atvinnuskipti hjá mér. Ég er orðin nokkuð spennt fyrir því að komast í bunkana þarna uppi, en vanda mig við það í leiðinni að skila nokkuð góðu af mér hérna. Vil ekki að Lilja systir þurfi að byrja í einhverju stappi. Er ég ekki góð??? :)
Ég er líka geysilega ánægð með það að vera búin að missa í heildina 6 cm í ummál í mittinu á þessum ca. tveimur mánuðum sem ég hef verið að borða kolvetnasnautt að mestu leyti. Er samt að vonast eftir því að finna meira fyrir minnkun á lærum og afturenda á næstunni ;) Gaman gaman...

2 Ummæli:

Þann 26 ágúst, 2004 05:05 , Blogger Hlynur og Erna Sif sagði...

Hljomar vel med spaenskunamid:) Eg er ad reyna ad fa brodur thinn i sma spaenskunam lika!!!
Byd her med fram hjalp mina ef thig vantar einhverja adstod vid thetta...
Okkur fannst lika rosagaman ad spjalla vid tha stuttu a afmaelisdaginn:) :) :)
Kvedja Erna

 
Þann 27 ágúst, 2004 10:03 , Blogger Heiða María sagði...

Gaman að þú sért að drífa þig í skóla ;-) Og frábært líka með að Ólöf hafi komist inn í píanónámið. Hún er svu dugleg, en vantar einhverja handleiðslu. Vonandi lætur píanókennarinn hana bara ekki byrja á of auðveldum verkum, þá gæti hún orðið leið á þessu.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim