23.11.04

Eitt ráð: Aldrei formattera harðan disk án þess að tékka þrisvar á því hvað sé á disknum.

Það kostaði mig 2 sólarhringa og 67 evrur að endurheimta 4000ogeitthvað digital myndir fjölskyldunnar og 15000 tónlistarskrár um helgina.

Eru ekki allir í stuði annars? Ég er að jafna mig á bölvaðri pestinni sem hrjáði mig fyrir helgina enda búin að vera á pensillíni, voða gaman. Er ennþá svolítið orkulítil en er að reyna að borða orkuríkan mat til þess að koma systeminu almennilega í gang aftur.

Mig langar í Jagúar diskinn "Hello somebody" í jólagjöf :-) Hitti Fúsa trommara í gær og hann sagði að það hefði verið mikið fjör á Nasa á útgáfutónleikunum þeirra á laugardaginn. Ég var ekkert svekkt yfir því að komast ekki, nei nei...

Fyrsti í aðventu er að nálgast eins og óð fluga. Þá stingum við útiseríunni í gang, er það ekki alveg tímabært??

1 Ummæli:

Þann 26 nóvember, 2004 19:07 , Blogger Heiða María sagði...

Já, ég hefði þó viljað vita að þetta væri á annað borð hægt. Mér tókst nefnilega fyrir nokkru að henda út öllum verkefnum sem ég hef gert síðan í menntaskóla. Var nefnilega að skipta um stýrilkerfi... :-(

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim