16.10.04

Jæja, loksins komst ég inn aftur. Einhverra hluta vegna þá komu aukastafir bæði í username og email addressuna sem var skráð á accountinn minn hérna, þannig að hvorugt fannst í langan tíma ;) En þessi elska, hann Graham, hjá hjálparstofnun blogger.com komst að hinu sanna í málinu og kom mér inn að nýju. Já, það borgar sig að hafa svona hjálparstofnanir hér og þar.

Ég fór í brúðkaup um síðustu helgi. Það má með sanni segja að það hafi verið formlegasta brúðkaup sem ég hef nokkurn tíman stigið fæti í enda var það að kaþólskum sið. Brúðurin var meira að segja spurð hvort hún væri þarna af frjálsum vilja!!! :-O En veislan sem fylgdi bætti formlegheitin alveg upp. Það var bara gaman, góður félagsskapur með stórfjölskyldumeðlimum, ofsalega góður matur, skemmtilegur andi, ágætis djamm-hljómsveit (Hljómsveitin Slör, takk fyrir) og síðast en ekki síst alveg snilldar taktar hjá okkur systrunum og nokkrum öðrum fjölskyldumeðlimum á dansgólfinu síðla kvölds. Mjög skemmtilegt kvöld og vonandi verður hjónaband Aðalheiðar og Starkaðs langt og hamingjuríkt.

Ég er alltaf upp fyrir haus í handavinnu, en ætti nú að fara að setja hana aðeins til hliðar svo ég geri meira af því að lesa félagsfræðina ;) Spænskan gengur alveg ágætlega held ég, en setningauppsetningin er svolítið að flækja málin stundum. Svo fær maður líka stundum hjálp frá spænskusnillanum í Hraunbænum og spænskusnillanum "downundah". Miklar þakkir fyrir það, stelpur.

Svo stefnir maður á djammið í kvöld, þriðju helgina í röð.. ég endurtek: ÞRIÐJU HELGINA Í RÖÐ!!! Ég veit ekki hvað er í gangi með mann hérna. Ég fer út að djamma að meðaltali fjórum sinnum á ári en á einum mánuði er ég næstum búin með skammtinn! Eiginmaðurinn verður meira að segja líka með í för í kvöld enda erum við að fara að hitta vinahópinn hans. Ég hef ekki hitt þau neitt að ráði alveg heillengi þannig að það er alveg kominn tími á að láta sjá mig. Svo datt mér náttúrulega í hug að kíkja í búðir áðan og ætlaði að finna mér eitthvað sítt svart pils... en auðvitað tókst mér ekki að finna mér neitt sítt svart pils. Ég mátaði nokkur skópör og hmm.. óþægilegt, óþægilegt og mjög óþægilegt. Það voru s.s. einkunirnar sem skópörin fengu. Bleh.. mig langar í svona lág stígvél sem eru með lágum hæl en samt þægileg. Þ.e. botninn á þeim þarf að vera svolítið meira heldur en 3 mm þykkur og gefa svolítið eftir, en það er s.s. ekki í boði í búðunum í dag. Þetta eru allt einhverjir pönnukökubotnar úr stáli, liggur við.

Vinnan gengur ágætlega. Ég er samt búin að eyða heilmiklum tíma í það sl. vikuna að finna gögn (t.d. posauppgjör og leigusamninga) sem hreinlega vantar í bókhaldið hjá mér. Ekki gaman. Á ennþá eftir að finna slatta svo ég geti gengið frá júlímánuði. Já, ég er enn að vinna upp júlímánuð nefnilega. Var að vonast til að vera komin með ágústmánuð allavega núna um miðjan mánuðinn. En svona er lífið. Það gengur ekki alltaf eins vel upp og maður vonast/ætlast til.

Talandi um að ég eigi ekki að vera að eyða svona miklum tíma í handavinnuna... mig langar *svo* mikið að hekla poncho á stelpurnar! hahahaha...

Bestu kveðjur í bili... Sídsá

4 Ummæli:

Þann 18 október, 2004 00:47 , Blogger Heiða María sagði...

Velkomin aftur í bloggheiminn. Hvernig eru annars pönnukökubotnar, átta mig ekki alveg á samlíkingunni?

 
Þann 18 október, 2004 09:39 , Blogger Asdis sagði...

Skóbotnar að þykkt á við pönnukökur :) Stundum tekst manni ekki að koma orðunum út úr sér eins og maður hugsar þau.

 
Þann 18 október, 2004 11:13 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Bestu, flottustu og þægislegustu stígvélin fást í GS skóm (Billi Bi). Kosta bara 20 þús. en endast og endast og endast....
UB

 
Þann 18 október, 2004 11:24 , Blogger Asdis sagði...

Það eru ekki allir sem geta leyft sér slíkar fjárfestingar, stóra systir ;)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim