8.11.04

Jei, ég var að fá einkunn fyrir fyrstu ritgerð sem ég geri fyrir skóla í ca. 12 ár eða svo. Fékk hvorki meira né minna en 8,5 fyrir stykkið og einu athugasemdirnar sem ég fékk voru um heimildaskrána, en síðan ég hef ekki gert svona í heillangan tíma er kannski ekki furða þó ég kunni ekki nýjustu reglur í heimildaskrám ;-) og ég er MJÖG ánægð með sjálfa mig akkúrat núna!!! Víhaaaa...

Eða Íhaaaavey eins og Lilja systir myndi segja.

Þá er meðaleinkunnin mín í félagsfræði orðin 7,95 og ég á eftir að taka eitt gagnvirkt próf á fjarnámsvefnum og lokapróf í desember. Vonandi gengur mér eins vel með það tvennt!!

Um daginn gaf pabbi mér DVD diskinn "Hell freezes over" sem er tónleikadiskur með Eagles frá 1994. Það þarf kannski ekki að útskýra það frekar en ég er allavega komin með Eagles á heilann. Er að uppgötva mörg gömul lög sem ég hef ekki heyrt í langan tíma, sakna þessu að mér í tölvunni og er akkúrat núna að hlusta á Sad Cafe sem er bara æðislegt. Aaahhh... Þessi tónlist á bara alveg ofsalega vel við hjartað á mér, get varla orðað það öðruvísi. Fékk reyndar smá sjokk þegar ég fór að forvitnast um hljómsveitina og sá hvað þeir eru gamlir.. eða já, kornungir því þeir eru víst allir nema einn jafngamlir pabba mínum. Þessi eini þarna er árinu yngri :-) Bara snillingar, allir upp til hópa.

Ég er enn alveg í skýjunum eftir jazztónleikana á fimmtudaginn, þeir voru geggjaðir í einu orði sagt og ekki var leiðinlegt að fá blásturshljóðfærasólóa beint í andlitið í lok tónleika. Við vorum nefnilega á öðrum bekk og enginn á fremsta bekk fyrir framan okkur! Þetta kallar maður að fá tónlistina beint í æð!

Fór í óvissuferð á föstudaginn. Óvissan var mikil á tímabili þar sem við keyrðum Hvalfjörðinn í miklu roki og ekki munaði miklu að rútan færi út af í einni hviðunni. Þá settist fólk niður og spennti sig í beltin! Fórum að Hvanneyri, skoðuðum ýmislegt merkilegt þar eins og t.d. ullarselið, kirkjuna og búvélasafnið. Ég var gestur nr. 2000 í skemmtiferð til Hvanneyrar og fékk í verðlaun Hrútaskrá 2003-2004 og kall gerðan úr þæfðri ull, einstaklega skemmtilegir gripir ;-) Svo var haldið að Skessuhorni þar sem við fengum miðnættisverð, og ég er ekki að djóka í því, alveg aðframkomin af hungri öll saman. Mikið fjör hjá sumum og svo mikið að konan sem ekki vildi fara Hvalfjarðargöngin (þ.e. ástæðan fyrir næstumþvíútafakstriáleiðinniuppeftir) sofnaði og þá gátum við skellt okkur göngin á leiðinni til baka.

Á sunnudaginn var ég svo að "vinna" fyrir Mótettukórinn þar sem þau voru að halda glæsilega tónleika í Hallgrímskirkju. Ég var í miðasölu og er bara fegin að hafa sloppið lifandi þaðan, svo mikill var ágangurinn á tímabili. Það tókst þó að koma öllum inn og tónleikarnir voru mjög flottir, dramatísk músík, flottur söngur og ekki var verra að heyra englaröddina í Ísaki Ríkharðssyni sem tók sóló með stæl! Mæli hiklaust með því að fólk geri sér ferð til að hlusta á hann hvar sem hann syngur.

Jæja, best að halda áfram að fara í gegnum fatahrúgu yngri dótturinnar. Minni bara á tónleika í salnum þriðjudagskvöld 9. nóvember kl. 18:15. Allir mæta sem mögulega geta!!

1 Ummæli:

Þann 09 nóvember, 2004 00:29 , Blogger Heiða María sagði...

Til hamingju með einkunnina ;-) Mæli með Handbók um ritun og frágang eða Gagnfræðakveri handa sálfræðinemum til að gera heimildaskrána næst. Var svo einmitt að heyra lof um þessa tónleika og Ísak í útvarpinu í dag. Við Björn ætlum svo að reyna að koma á ekki síðri tónleika á morgun hjá henni Ólöfu.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim