2.11.04

Jei, skólinn byrjaði aftur hjá rauðhærðu tröllastelpunni minni í gær. Engin smá hamingja hjá henni. Hún ætlaði bara að hlaupa út strax kl. 07:30 því hana hlakkaði svo mikið til að mæta í skólann. Svo var bara ofsalega gaman og mikið fjör og æðislegt að hafa heimalærdóm aftur og meiriháttar stuð og í gærkvöld hugsaði hún um daginn dreymin á svipinn eins og hún væri í nostalgíukasti ;)

Ég er svo dugleg alltaf að koma sjálfri mér í fjölmiðlana... vann í gær mat fyrir 5 á Sowieso í Lækjargötu 2a í hádeginu í dag. Hef aldrei farið á þann stað þannig að það verður gaman að vita hvernig maturinn þar bragðast.

Svo er ég að fara á "námskeið" í dag sem heitir "Þekkir þú hæfni þína?" Það verður gaman að vita hvort ég þekki hæfni mína ;)

Vinnan gengur vel, nóg að gera og ég er að komast ágætlega inn í þetta allt saman hérna. Það sem miklu máli skiptir er félagsskapurinn og mórallinn á vinnustaðnum. Mjög góður andi og allt alveg eðal-manneskjur svo ég er mjög ánægð hérna. Mér gengur líka ágætlega með skólann, fékk 7,4 í félagsfræðiprófi sem ég tók um helgina. Meðaleinkuninn í því er 6,5 þannig að ég er bara í ágætum málum held ég.

Við tókum smá forskot á jólafílinginn og vorum með hamborgarhrygg í matinn á sunnudaginn. Kristín systir og amma komu í mat, allir átu yfir sig, mikil hamingja og læti. Ís í eftirrétt og amma fékk sér espresso úr nýja kaffihúsinu hans Stjána (mér finnst það bara ekki réttlátt gagnvart kaffivélinni að kalla hana bara kaffivél... þetta er næstum því heilt kaffihús).

Úff... er að fara á ansi spennandi tónleika á fimmtudagskvöldið í Salnum. Það verður vonandi eins mikið æði og ég vonast til. Ég er komin með jazz æði held ég. Þarf að fara að sanka að mér slíkri tónlist í meira mæli.

Mæli með innleggi Hlyns bróður frá í gær. Frekar fyndið :) Líka fullt af myndum komnar inn hjá þeim skötuhjúunum downundah. Alltaf gaman að fá að fylgjast með :) :) :) Bara 49 dagar þangað til þau koma heim... jibbíííííí....

1 Ummæli:

Þann 02 nóvember, 2004 12:47 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl mágkona:)
Gott að vita að manns er saknað á klakanum, við söknum ykkar allra líka mjög mikið og bíðum spennt eftir heimkomu!
Frábært að skólinn sé byrjaður aftur og bæði börn og foreldrar geti farið að anda léttar aftur...
Besos de Australia
Erna

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim