2.12.04

Jæja, mér tókst nú ágætlega að bulla mig fram úr félagsfræðiprófinu í gær og var bara komin með einkunn klukkan 10 í gærkvöld! Ekki mikið að slóra þessi kennari :) Fékk 7,4 fyrir prófið og lokaeinkunn 8,0 fyrir kúrsinn, sem ég er mjög ánægð með þar sem mér hefur aldrei áður gengið vel í kjaftablaðursfagi. Ætli kjaftablaðrið hafi ekki bara aukist í mér eftir því sem aldurinn hefur færst yfir....

Ég hef ekki miklar vonir fyrir spænskuprófið á morgun enda hef ég ekki lagt mikla áherslu á spænskuna. Hef alveg þýsku metna sem þriðja mál þannig að ég þarf ekkert að stressa mig yfir henni. Og hef líka komist að því að einn kúrs er alveg nóg þegar maður er í fullri vinnu og þarf að hugsa um heimili og 2 börn líka. Þannig að ég ætla að dunda mér við þetta í rólegheitum og ekki vera að taka of mikið í einu. Þá er bara spurningin hvað maður eigi að taka á næstu önn. Stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði... það er svo margt sem kemur til greina.

2 Ummæli:

Þann 02 desember, 2004 18:28 , Blogger Heiða María sagði...

Þetta er flott hjá þér. Ég vona líka að þér gangi vel í spænskunni. Hvað áttu annars margar einingar eftir? Mitt álit er að þú eigir að taka stærðfræði næst, því hún tengist svo eðlis- og efnafræði, og er þess vegna góður grunnur fyrir það.

 
Þann 02 desember, 2004 20:22 , Blogger Asdis sagði...

Ætli ég eigi ekki ca. 50 einingar eftir, er ekki alveg komin með endanlega mats-tölu. Og já, ég hneigist svolítið að því að klára bara stærðfræðina núna á næstu önnum.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim