22.6.05

8 dagar í VIP-lífsreynslu. Ég er frekar spennt. Er í Duran Duran bolnum mínum og allt í dag ;-)

Var að frétta að það hafi selst 4 VIP miðar í viðbót, þannig að nú verðum við allavega 10 í VIP hópnum á tónleikunum. Og ég og eiginmaðurinn erum einu íslendingarnir í þeim hópi!

Búin að ráðstafa A-miðunum sem ég vann um daginn. Þarf bara að reyna að vinna fleiri miða til að koma fleira fólki á tónleikana ;-)

Og já, það þarf ekki mikið til að koma kílóafjöldanum niður á við á stuttum tíma. Ég hef, með auknu samviskuleysi í áti á kvöldin, komið mér næstum því í þá tölu sem ég var í fyrir ári síðan. Svo hef ég nú í 3 daga tekið grænt te í töfluformi (2 töflur á dag) og ekki borðað neitt eftir kl. 8 á kvöldin. Voila.. fyrsta kílóið og hálfa farið í morgun. Ég nenni ekki að verða eitthvað búttuð... langar það bara engan veginn... finnst það ekki passa mér. Ég þarf bara að sýna smá sjálfstjórn!

Flottir strákar :)

1 Ummæli:

Þann 22 júní, 2005 09:49 , Blogger Asdis sagði...

Demn it! Ég "rek" mig stundum í dagsetningartakkann greinilega. En já.. ég væri alveg til í að hafa 28. júní núna :D

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim