15.6.05

Ég komst ekki hjá því að hlusta á brot úr samtali er ég labbaði framhjá Hlemmi í gærmorgun. Kona, nokkuð illa til fara, með tvær stórar töskur, stóð fyrir framan Hlemm og hrópaði til manns sem stóð hinum megin við götuna. "Ég var bara að losna út í morgun." "Nú? Og hvert ætlarðu að fara?" hrópaði maðurinn á móti. "Ég var sko bara að losna í morgun" hrópaði konan aftur. "En hvert ertu að æða?" spurði maðurinn. "Ég var nefnilega að losna bara í dag" hrópaði konan aftur og enn þegar ég var komið að búðinni og hvarf inn í hana.

Þegar ég kom út aftur var konan horfin. Hún hafði sem sagt losnað um morguninn og strætóinn ábyggilega tekið hana með sér einhvert út í buskann.

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim