11.6.05

Hlaupabóla is in da house. Yngri dóttirin er öll í bólum, út um allt. Ekki gaman. Mikill kláði og slæm nótt, lítið sofið. Mér leið eins og ég væri í "The Itchy and Scratchy Show" á tímabili. Er búin að kaupa Clarityn í fljótandi formi sem á að losa hana við kláðann. Leiðinlegt að þurfa að gefa henni svona lyf en ég bara meika ekki aðra svona nótt...

*geisp*

Svo á maður víst að mæta í vinnudjamm kl. 3 í dag. Jæks... verð alveg hressasta manneskjan á landinu.

Ég hefði síðan alveg verið til í að fara í þrítugsafmæli í kvöld en ætla nú ekki að gera ömmunni og afanum það að vera með hlaupabólubarnið yfir nótt.

19 dagar í VIP - Duran Duran. Fékk póst í gær frá stelpunni sem er að skipuleggja VIP partýið og sagðist vera að ganga frá öllum smáatriðum varðandi partýið. Meiri upplýsingar koma eftir nokkra daga :-)

Ég er byrjuð í Líffræði 103 í fjarnáminu. Sá mér til mikillar skelfingar í bókinni að ég eigi eftir að þurfa að læra um flatorma og önnur slík ógeðs dýr. Ekki uppáhaldið. Ekki furða að ég sé ekki líffræðings-material.

Fékk annars 82 einingar metnar úr "fyrra lífi". Búin með 6 í viðbót í FÁ þannig að þetta kemur hægt og hljótt. Fékk allskonar versló-dót metið upp í val einingar þannig að það er mest megnis skyldueiningar sem ég á eftir að taka. Jei...

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim