Þvílíkur dagur :) og hann er varla hálfnaður :) :) :)
Ég fékk póst á póstlista Wembley í morgun, upplýsingar um tónleika Depeche Mode í Wembley Arena, sem verða 3. apríl, 2006. Þvílíkur draumur að komast á þessa tónleika :) þannig að ég bara keypti miða. Litla systir mín ætlar með og djís hvað við eigum eftir að skemmta okkur vel. Klikkað fjör í London!
Svo var útvarpsgetraunin á Bylgjunni... 2 miðar á Duran Duran í verðlaun. Enginn séns að ná í gegn, hélt ég, en reyndi samt. Alltaf á tali.. reyni nokkrum sinnum í viðbót... svo kom sónn... og Ívar svaraði: Jæja, ætlar þú að reyna við spurninguna okkar? Mér brá svolítið og sagði "Ha, ertu að djóka?" "Nei, þú ert númer 10 í röðinni." :) Þá var það spurningin.. ég titraði og skalf af sviðsskrekk, þar sem ég var nú í beinni útsendingu. Hvaða ár fæddist Jón Sigurðsson? a) 1801 b) 1811 eða c) 1821 ? Úff... ég hafði ekki hugmynd um það en varð að skjóta fram svari því ég fékk bara 5 sekúndur... giskaði á 1811 og..... það var rétt!! Ég ætlaði ekki að trúa því! Þannig að... nú á ég 2 aukamiða á Duran Duran :) Veit ekki hvort þeir eru fyrir a eða b svæði, kemst að því á eftir þegar ég sæki þá. Þá er best að komast að því hvaða vinir mínir vilja komast á Duran Duran án þess að þurfa að borga morð fjár :) Auction is open ;)
Best að vinna smá...
1 Ummæli:
Úúú mig langar á Depeche Mode. Hvað ertu annars að selja þessa Duran Duran miða á?
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim