17.11.05

Best að prófa þennan leik:

Settu nafnið þitt í komment hjá mér og:
1. I´ll tell you something random about you
2. I´ll tell you what song/movie reminds me of you
3. I´ll pick a flavor of jello to wrestle you in
4. I´ll say something that only makes sense to you and me
5. I´ll tell you my first/clearest memory of you
6. I´ll tell you what animal you remind me of
7. I´ll ask you something that I´ve always wondered about you

19 Ummæli:

Þann 17 nóvember, 2005 17:05 , Blogger Litla Skvís sagði...

Linda!

 
Þann 17 nóvember, 2005 17:13 , Blogger Asdis sagði...

Linda:

1. Þú ert ferlega kúl stelpa og ég hlakka til að kynnast þér betur.
2. Sister of night... það eina sem við höfum "shareað" hahaha
3. Hmmm... súkkulaði
4. DM 3. apríl
5. Þú algjör mjóna með risastóran körfubolta undir tunicunni þinni.. eða nei, þú varst víst alveg komin á steypirinn.. í saumó hjá Sonju.
6. Sphinx köttur nema að þú ert ekki fjólublá á litinn ;)
7. Hvað ertu eiginlega gömul? Mér finnst erfitt að lesa í það... gömul sál í ungum líkama, eitthvað svoleiðis :)

 
Þann 17 nóvember, 2005 17:53 , Blogger Litla Skvís sagði...

Ég er 27 síðan 27.ágúst síðastliðinn. s.s. '78 módel :D

 
Þann 17 nóvember, 2005 18:20 , Anonymous Nafnlaus sagði...

OK, Kristín! Þú mátt samt sleppa lið 3, sé ekki alveg tilganginn :)

 
Þann 17 nóvember, 2005 18:27 , Blogger eva sagði...

Ég! :)

 
Þann 17 nóvember, 2005 19:02 , Blogger Asdis sagði...

Kristín:

1. Þú ert litlasta systirin mín og það er skylda mín að verja þig frá öllu illu.. þannig að... ekki koma nálægt neinu illu, ok??
2. Creep.. Ölver.. hahaha
3. Hehehe.. súkkulaði (það er ekkert annað jello þess virði)
4. Við erum með svo góðan tónlistarsmekk!!
5. Ég man ekkert rosalega mikið eftir þér sem ungabarni en fannst alveg ferlega skemmtilegt að leika við þig þegar þú varst svona 2-3ja ára bullari. Svo verður það bara skemmtilegra og skemmtilegra ennþá!
6. Þú ert samblanda af þessum tveimur: http://www.enchbyench.com/angie/long_eared_dog.jpg
7. Ertu búin að uppgötva að nú ferð þú rétt bráðum að verða fullorðin, skv. skilgreiningu eldri dóttur minnar á fullorðinsárunum?

Eva:

1. Þú ert held ég aldrei með sömu klippinguna lengur en 3 vikur eða svo...
2. One - Metallica
3. Súkkulaði (ok.. það verður alltaf súkkulaði)
4. Þvottahúsin!
5. Ég man sérstaklega vel eftir magnaðri stund, ábyggilega heima hjá þér í gamla daga, þar sem við vorum nokkur að hlusta á Metallica.. ef það var ekki bara vídeó í tækinu..
6. Þú minnir mig soldið á póní hest, litríkur karakter :)
7. Ætlarðu að reyna við lögguskólann aftur á næsta ári? (Go go go go go Eva go!)

 
Þann 17 nóvember, 2005 20:28 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

ok ég líka

 
Þann 18 nóvember, 2005 14:03 , Blogger Asdis sagði...

Hafrún:

1. Þú geislar af lífsgleði!
2. Veit ekki.. hef samt grun um að þú fílir gamla góða Queen slagara.
3. Súkkulaði!
4. Hádegið..
5. Mér fannst ég hafa hitt þig áður af því að ég var búin að sjá mynd af þér, ferlega skrýtin tilfinning.
6. Cocker Spaniel
7. Hvað hefurðu verið handavinnufíkill lengi?

 
Þann 18 nóvember, 2005 14:52 , Blogger Hafrún Ásta sagði...

Held ég hafi alltaf verið handavinnufíkill bara í lægð í nokkur ár sem unglingur og um það leyti. Queen var eflaust næstfyrsta hljómsveitin sem ég fílaði fyrir utan AHA og WHAM á svipuð tíma á undan hehe. En ég er sko METALLICA í gegn :o) er ROKKARI með stórum stöfum hehe.

Gaman að því ;o)

 
Þann 18 nóvember, 2005 21:05 , Blogger eva sagði...

Híhí :)

Veit ekki ennþá með lögguskólann. Get sótt um aftur í apríl, svo ég hef nokkra mánuði til að ákveða þetta. Er komin í svo skrambi góða vinnu að ég er ekkert viss um að ég tími að sleppa henni!

 
Þann 21 nóvember, 2005 09:05 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Pick me... úúúú... pick me...

 
Þann 21 nóvember, 2005 09:11 , Blogger Asdis sagði...

Lillý Manillý: (hehehehe)
1. Inni í feimnu stelpunni er algjör gella sem bíður eftir að vera hleypt út!
2. The Princess Bride... My name is Indigo Montoya, you killed my father, prepare to die!
3. Súkkulaði..
4. Ef XXX dissar systur mína/bróður minn þá er MÉR AÐ MÆTA! múahahahaha
5. Mesti prakkari í heiminum að stríða bróður sínum þó þið væruð ekki orðin ársgömul.
6. Þú ert panda.
7. Hvenær ætlarðu að fara að finna þér skemmtilegri vinnu????

 
Þann 21 nóvember, 2005 13:35 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Well, eg verð að lata þig profa þetta með mig ;)

 
Þann 21 nóvember, 2005 15:38 , Blogger Asdis sagði...

Björg:

1. Þú hefur ofsalega stórt hjarta.
2. Spænska myndin sem gerði okkur orðlausar, minnir mig á þig.
3. Súkkulaði (má ekki klikka á þessu)
4. Fyrsti tími á þriðjudagsmorgnum: Verslunarréttur! (eða var það á mánudagsmorgnum.. nei held það hafi verið þriðjudagsmorgnum)
5. Aðal skvísan í bekknum, ég þorði ekki að tala við þig, þú varst svo mikil skutla.
6. Angórukanína, algjör knúsulína
7. Hmmm... hvaða lands langar þig til, sem þú hefur ekki farið til áður?

 
Þann 21 nóvember, 2005 16:09 , Blogger Heiða María sagði...

Þetta er skemmtilegt :) þú mátt reyna hjá mér :P

 
Þann 21 nóvember, 2005 22:33 , Blogger Asdis sagði...

Heiða:

1. Ég hef aldrei séð eins stórar tennur í eins litlum munni eins og þínum áður en þú byrjaðir í tannréttingum!
2. Wake me up before you go go (hahahahaha)
3. Súkkulaði
4. Hmmm.. það kemur ekkert upp í hausinn á mér einn tveir og þrír..
5. Þegar ég sá þig fyrst varstu pínulítil og mjó, með ofsalega fallegt rautt hár og mikið fjör í þér. Ef þú hefðir verið strákur hefði ég getað kallað þig gaur!
6. Þú minnir mig á fugl sem syngur ofsalega mikið, hoppar og skoppar út um allt og er aldrei kyrr
7. Hvenær ætlarðu að draga Björn Leví upp að altarinu? ;-) Tjah, eða hann þig?

 
Þann 21 nóvember, 2005 23:21 , Blogger Heiða María sagði...

Hehehe sneddí ;) Og svo satt með tennurnar...

 
Þann 22 nóvember, 2005 08:24 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hmm... reynum'etta :)

 
Þann 22 nóvember, 2005 11:19 , Blogger Asdis sagði...

Sverrir:

1. Þú ert svo skemmtilega léttgeggjaður, my kind of friend!
2. Islands in the stream
3. Súkkulaði.. and lots of it!
4. Litli Herkúles.. eða var það Hönkjúles? hahaha hann var "flottur"
5. Ég hitti þig held ég fyrst í mötuneytinu, og mér fannst ég geta lesið persónuleika þinn alveg frá fyrstu stundu. Ég vissi bara nákvæmlega hvernig þú varst þegar við fórum að tala saman.
6. Þú ert stóri trausti knúsulegi björninn minn (ekki trukkur!)
7. Ef þú fengir að velja einn geisladisk til að hlusta á í heila viku stanslaust, hvaða diskur yrði fyrir valinu?

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim