Það er ýmislegt hægt að læra af reynslunni.
Það sem ég lærði um helgina er:
1) 400gr af humri á þeim frábæra stað "Við fjöruborðið" er bara lágmarks skammtur. Skil ekki af hverju þeir eru að bjóða upp á anorexíu-fyrirsætu-skammta 250gr og 300gr.
2) Humarinn á þeim frábæra stað "Við fjöruborðið" er svo góður að maður getur eiginlega borðað endalaust af honum. Slurp slurp slef slef.
3) Maður þarf að kaupa miða á Sálarball í forsölu á höfuðborgarsvæðinu, nema kannski mögulega þegar þeir spila á "stóra staðnum" Players.
4) Það er fátt betra en góður félagsskapur. Hvað þá þegar maður blastar "Paradise by the dashboard light" og allir syngja hástöfum. Gullið móment :-)
5) Ég þarf ekki einu sinni að reyna að fara í bæinn að djamma. Röltið bara virkar ekki fyrir mig lengur.

3 Ummæli:
Jæja... ég skoðaði betur greinina í blaðinu sem þú bentir mér á... og sprakk gjörsamlega úr hlátri!!!!
Kristín hin skrítna!
Hvaða grein ?? Mí forvitn..
Sammala öllum liðum nema nr. 5 ;) þar sem eg fer enn a röltið...
Fretti það svo að það væri helst i Moso sem það seldist upp a böll, allir með party og bærinn fer bara allur ;) enda alþekkt að Mosfellingar eru miklir djammarar.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim