Bíllausi dagurinn - frítt í strætó
Þetta las maður í blöðunum í morgun (og svo sem búið að segja manni frá þessu áður því Björg vinkona stendur fyrir þessu öllu ;) ). [byrjun á kaldhæðni] Og ég sem sagt vonaðist til að það yrði minni umferð á leið minni í vinnuna, sem ég náttúrulega fer á mínum eðal-bíl. [endir á kaldhæðni] En það var bara alveg nákvæmlega sama umferðin... nema í kringum Hlíðaskóla.. þar er engin umferð þessa dagana því krakkarnir fá ekki að fara í skólann út af einhverju miðalda-verkfalli sem er í gangi.
Ég skoðaði tillögur að nýju leiðakerfi strætó um daginn. Ég bý í 2ja mínútna göngufæri frá aðalskiptistöðinni í Kópavogi og hélt nú að það ætti ekki að vera erfitt að taka beina leið þaðan og niður á Hlemm, en ég vinn í 2ja mínútna göngufæri frá Hlemmi.
Nei, það er sem sagt ekki hægt. Bara svona að láta ykkur vita af því. Strætóinn sem fer hring í hverfinu mínu endar uppi í Staðahverfi í Grafarvoginum ef ég man rétt. Allir þeir strætóar sem fara í gegnum skiptistöðina fara annað hvort út í úthverfi Reykjavíkur, til Hafnarfjarðar... tjah.. eða niður á Lækjartorg með viðkomu í gegnum austurbæ Reykjavíkur til dæmis. Og svo er fólk hissa á því að strætó skuli lítið vera notaður! Manni finnst það einhvern veginn vera grundvallaratriði á svona samgöngutæki sem leiðakerfið er, að það sé möguleiki að taka einhverjar hraðleiðir á milli stærstu skiptistöðvanna, án þess að þurfa að vera 40 mínútur á leiðinni í gegnum 7 hverfi.
Best að drífa sig í ör-fræðslu Sverris.
2 Ummæli:
Þetta er nottla hneyksli! Ég man þegar ég var krakki og unglingur (og krakklingur) þá tók maður alltaf strætó beint af skiptistöðinni niður á Hlemm. Tók ekki nema korter eða svo. Þetta er barasta fáránlegt.
Hey, áttu ekki afmæli í dag? Til hamingju, ef þetta er rétt hjá mér ;-)
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim