17.9.04

Föstudagskvöld, einu sinni enn. Ég sit hérna í rigningunni og hugsa til Hlyns og Ernu sem ættu kannski já bráðum að vera að ljúka 38 tíma lestarferð sinni frá Adelaide til Perth. Ég ætla rétt að vona þeirra vegna að svefntöflurnar hafi virkað vel og að þau hafi ekki klárað allt bókasafnið sitt strax. Það verður eitthvað að vera eftir fyrir leiðina til baka, er það ekki??

Ég stóð mig geysilega vel í náminu þessa vikuna. Rúllaði upp fyrsta félagsfræðiverkefninu, sendi það til kennarans sem síðan svaraði mér því að það væri ágætlega unnið en ég þyrfti ekkert að vera að senda honum verkefnin. Ég ætti bara að gera þau svona fyrir mig og svo verða gagnvirk próf á netinu í október og nóvember sem ég fæ svo einkunn fyrir. Svo gekk mér svona la-la með spænskuverkefnið. Finnst það undarlegt að maður eigi að hafa heilmikinn orðaforða í spænsku í fyrstu vikunni þegar námsefnið er afskaplega lítið og gengur út á endingar lýsingarorða. Getur einhver sagt mér hvað soy de og eres de þýðir??

Smá fyrir ofurnördana: http://www.wunderground.com/tropical/ Æðisleg síða fyrir áhugamenn fellibylja og tropical storma.

Ég er að skrá mig á "Þekkir þú hæfni þína" námskeið sem verður í nóvember. Ætli þetta verði ekki eins og hjá Chandler, þegar hann komst að því að hans hæfileikar lægju í "data processing". LOL Ég á eftir að fitta vel við prófílinn hjá týpíska bókaranum, hugsa ég. Nema að eitthvað leynt brjótist út í mér og ég verði að gerast lögreglukona eða eitthvað... ég veit það ekki.

Í gær var fyrirlestur í vinnunni. Hlín Agnarsdóttir mætti á svæðið og fræddi okkur um leiklistina og hvernig er hægt að nota hana í að bæta samskipti við samstarfsmennina. Meira ruglið....

Stend mig vel í vigtinni, er alls ekki búin að vera neitt sérstaklega aðhaldssöm en er samt enn í 60 kílóunum og brosi bara út að eyrum :D

2 Ummæli:

Þann 18 september, 2004 17:37 , Blogger Heiða María sagði...

Hvernig er þetta námskeið? Er verið að athuga hæfni eða áhugamál? Allavega, ef þú ert að pæla í áhugamálum og hvað þér gæti fundist skemmtilegast að mennta þig í, þá er til ágætis sálfræðilegt próf sem heitir Strong, sem hægt er að taka hjá námsráðgjafa í flestum menntaskólum og í Háskólanum.

 
Þann 19 september, 2004 15:21 , Blogger Asdis sagði...

Þetta stendur á vefnum hjá SFR varðandi námskeiðið:
Markmið:
Að þátttakendur verði meðvitaðir um gildi þess að þekkja fjölbreytileika þeirrar hæfni sem þeir búa yfir, hæfni sem þeir hafa öðlast í námi, leik og starfi. Hugtakið "raunhæfni" verður kynnt auk þess sem einstaklingum verður veitt ráðgjöf um kortlagningu og mat á henni.
Hrafnhildur Tómasdóttir sér um þetta, það verður gaman að prófa.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim