Ég fékk frí í vinnunni eftir hádegi í dag vegna áskorunar Heimilis og skóla um að foreldrar skólabarna væru heima með börnunum eftir hádegið í dag (var þessi setning nokkuð langloka? Nei getur það verið?? ;) ). Ég sótti stúlkuna til ömmu sinnar, við brenndum heim og byrjuðum á að þrífa bílinn sem var orðinn dimmgrár af sjávarsaltinu sem hefur ausast yfir okkur undanfarið í rokinu. Það fannst nú stúlkunni vera mikið fjör að fá að skrúbba bílinn með kústinum og fá svo að sprauta á eftir til að skola. Svo lá leið okkar upp í Perlu þar sem við kíktum á Leikbæjar-útsölu og fórum nú ekkert alveg overboard, stóra daman keypti sér eitthvað smotterí og jólagjöf handa litlu dömunni. Einnig fékk ég þessi fínu jólakort, 15 stykki með umslögum í pakka á 245 kr minnir mig.
Varúð MONT MONT MONT MONT
Stóra stelpan mín er búin að vera í píanótímum í 6 vikur eða svo. Kennarinn mjög ánægð með hana og vill núna að hún spili á nemendatónleikum á fimmtudaginn eftir viku, 28. október!!! Allir velkomnir í Salinn kl 18:15 að hlusta á litla snillinginn minn :)
4 Ummæli:
Hún er meiri snillingurinn :)
Jagúar bað að heilsa ;) Það var brjálað stuð!
OOOO, gleymi alltaf að skrifa nafnið, þetta er auðvitað Kristín litla systir :)
Ekki er ég hissa á litla pínaósnillingnum ;)
Mig langar líka á tónleika:(
Viljum fá einkatónleika þegar við komum heim.
Annars mjög gaman að fylgjast með því að Ólöf Svala sé svona dugleg að spila. Vissi það nú fyrir löngu að hún væri mjög múskíkölsk!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim